

| Rökkvi Vésteinsson |
| Ferill: |
| Rökkvi Vésteinsson byrjaði með afþreyingarsíðuna lágmenning.is árið 2000 var upphafsmaður wrestling á Íslandi sama ár. Hann byrjaði í uppistandi 2003 á Íslands. Hann bjó síðan Kanada árið 2005 og var þá með uppistönd í Montreal og Ottawa. Rökkvi sneri aftur þangað ágúst 2006 og sigraði í fyrstu umferð af "The Great Canadian Laugh off" í Ottawa. Auk þess fór hann uppistands og grínferð um Kanada, England og Írland seinna sama ár. Hann fór einnig upppistandferð um Holland og Belgíu árið 2008. Rökkvi sá um góðgerðaruppistöndin á Gauki á stöng 2005-2006 og er alfarið góðgerðaruppistandari í dag, þannig allar uppistandstekjur hans renna í góð málefni. |
| Byrjunin: |
| Ég var alltaf smá svona að koma fram í hinu og þessu í grunn og menntaskóla, en ætli byrjunin sem grínisti hljóti ekki að hafa verið þegar ég opnaði lágmenning.is 11.september árið 2000. Lágmenning.is var virkilega það sem kom mér á kortið verð ég að segja. Fyrsta uppistandið mitt var á árshátíð Verkfræðideildarinnar í HÍ í febrúar 2003. Ég var bara að grínast við vini mína í tölvunarfræði og einn stakk upp á ég yrði með uppistand á árshátíðinni. Ég var búinn að vera að pæla í uppistandi og var búinn að hugsa upp soldið efni þannig að ég sló bara til. Það voru svona 200 manns þarna og Úlfar Linnet var kynnirinn, þannig hann sá fyrsta uppistandið mitt. Ég var rosalega hrár þegar ég byrjaði en á endanum fór ég að slípast soldið til í þessu. |
| Uppáhalds grínistar og uppistandarar: |
| Innlendir þá hlýtur það að vera Fóstbræðragengið. Erlendir þá myndi ég nefna Monty Python, Ali G og þá sérstaklega í gervi Borats frá Kazakhstan, Trey Parker og Matt Stone, sem gera South Park þættina. Ég verð eiginlega að nefna leikstjórana John Waters sem gerði Pink Flamingos og Polyester og Peter Jackson, fyrir Bad Taste, Braindead og Meet the Feebles. Þessar myndir voru óendanlega fyndnar og ég held eiginlega meira upp á Peter Jackson fyrir gömlu splatter myndirnar hans heldur en fyrir LOTR seríuna. |
| Hápunkutur/hápunktar ferilsins til þessa: |
| Í uppistandi þá tvímælalaust að sigra í fyrstu umferð "Great Canadian Laugh off" í YukYuk´s klúbbnum í Ottawa í ágúst 2006. Á Íslandi hafa bestu uppistöndin kannski verið í Grundaskóla á Akranesi og síðan fyrir unga sjálstæðismenn í Kópavogi. Held samt að hápunktur minn sem grínisti yfir höfuð hafi verið þegar ég hljóp niður Laugaveginn í Borat skýlunni. Það var óviðjafnanlegt. |
| Skemmtilegast við að vera grínisti: |
| "Instant gratification" - ef maður segir vel heppnaðan brandara. Það er æðislegt að vera uppi á sviði þegar fólk er virkilega að springa úr hlátri yfir því sem maður er að segja. |
| Leiðinlegast/erfiðast við að vera grínisti: |
| Leiðindin sem ég hef lent í (eða komið mér í) hérna á Íslandi. Bransinn er bara svo lítill að það er svo mikið af óhæfu, ófaglegur og óheiðarlegu fólki og fólki með ótrúlegar ranghugmyndir og stjörnustæla sem vaða uppi. Úti í Montreal er þetta hins vegar alveru bransi með vissum virðingarstiga og færum aðilum sem skipuleggja. Bjánarnir síast fljótt út. Ég var sjálfur að mörgu leyti með ranghugmyndir og leiðinlegt "attitude" þegar ég byrjaði á Íslandi, en ég lærði að miklu leyti að bera og sýna virðingu þarna úti. Núna reyni ég bara að vinna með því góða og faglega fólki sem er í þessu hérna og forðast hina. |
| Hvað finnst þér gera virkilega góðan grínista? |
| Besti mælikvarðinn á hversu góður maður er er bara hvort áhorfendur hlæja að manni. Mér persónulega finnst samt að það að vera snillingur sé að geta fundið eitthvað upp eitthvað æðislegt sem ekkert venjulegt fólk hefði getað. Það gildir alveg jafn mikið um grín og aðra hluti. Bestu grínistarnir finnst mér þess vegna vera þeir sem geta komið með einhver fáránlega fyndin sjónarhorn á hlutina sem engum öðrum hefði dottið í hug. |
| Hvernig húmor er uppáhaldið þitt? |
| Ef húmor er nógu snjall þá skiptir umfjöllunarefnið ekki máli. Ég hef mjög gaman af kaldhæðnum húmor / illkvittni og ætli ég verði ekki að teljast soddan perri líka. Perrasakapur og illkvittni verða samt að vera snjöll því subbuskapur og dónaskapur/leiðindi ein og sér eru ekkert fyndinn. |
| Framtíðar takmark: |
| Að vera með uppistand fyrir Femínistafélagið - og lifa það af. Mig langar líka rosalega mikið til að leika aðalhlutverkið í dans og söngvamynd á móti Birgittu Haukdal, en það er náttúrulega óraunhæft því Birgitta er allt of lélegur dansari til að leika á móti mér. |