

| Jónas Reynir |
| Ferill: |
| Jónas Reynir er annar af höfundum Arthúr teiknimyndasögunnar vinsælu. Hann hefur séð um að halda uppistandskvöld á Vegahúsinu á Egilsstöðum og er að stíga sín fyrstu skref í uppistands bransanum. |
| Byrjunin: |
| Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á uppistandi. Fyrsta sparkið í rassinn var þegar Þorsteinn Guðmundsson hélt smá uppistandsnámskeið hérna fyrir austan. Þá flutti ég mínar fyrstu 5 mínútur. |
| Uppáhalds grínistar og uppistandarar: |
| Tvíhöfði og Fóstbræður hafa haft einhver mest áhrif á mann í gríni. Af uppistöndurum líkar mér best við Woody Allen, Steve Martin, George Carlin, Bill Hicks og Richard Pryor. |
| Hápunkutur/hápunktar ferilsins til þessa: |
| Ég fann 50 krónur á gólfinu eitt skiptið þegar ég var að ganga upp á svið. Það var mesti gróði sem ég hef fengið fyrir kvöld. |
| Skemmtilegast við að vera grínisti: |
| Mér finnst erfitt, stressandi og áhættusamt að vera með uppistand. Þess vegna er það mjög góð tilfinning þegar það tekst vel. Það er ávanabindandi. Það er erfitt að útskýra hvað það er sem maður fær út úr því. |
| Leiðinlegast/erfiðast við að vera grínisti: |
| Erfiðast finnst mér að fara upp á svið og fá alla til að hlæja eins og óðir væru. Leiðinlegast finnst mér að þrífa upp ælu sem ég kasta út úr mér í stresskasti áður en ég fer á svið. |
| Hvað finnst þér gera virkilega góðan grínista? |
| Það er erfitt að finna eitthvað eitt sameiginlegt meðal góðra grínista nema að þeir eru fyndnir. Einnig held ég að maður komist ekki langt án þess að vera frumlegur í hugsun. |
| Hvernig húmor er uppáhaldið þitt? |
| Enginn sérstakur. Bara einhver fyndinn. |
| Framtíðar takmark: |
| Að ná það góðum árangri að ég geti lifað drauminn minn, að selja tryggingar. |