Uppistand.is
Rokkvi
Hákon Seljan
 
Ferill:
Hákon Seljan er tiltölulega nýr í bransanum en þykir mjög efnilegur. Hann hefur skemmt á skólaskemmtunum verið með uppistönd í Húsinu á Egilstöðum og tók þátt í Fyndnasti maður Íslands keppninni 2007.
Byrjunin:
Námskeið sem Þorsteinn Guðmundsson hélt á Egilstöðum Í Menntaskólanum svo byrjuðum við að halda þetta, held samt að Jónas Reynir (uppistandari og annar höfundur Artúr teiknimyndana) hafi nú svona verið aðal drifkrafturinn, án hans væri ég líklegast fátækur kennari í Bolungarvík.
Uppáhalds grínistar og uppistandarar:
Bill Hicks, Þorsteinn Guðmundsson, Jón Gnarr, Eddie Murphy, Radíusbræður og Ron White.
Hápunkutur/hápunktar ferilsins til þessa:
Fyndnasti maður Íslands keppnin.
Skemmtilegast við að vera grínisti:
Láta fólk hlægja og kannski þegar fólk biður mann um að segja eitthvað fyndið.
Leiðinlegast/erfiðast við að vera grínisti:
Svona áður en maður fer uppá svið fílingurinn held ég stressið er rosalega erfitt.
Hvað finnst þér gera virkilega góðan grínista?
Líklegast bara vera fyndin og vera með góða tímasetningu ég held að gott efni skipti oft minnstu máli, það er meira hvernig maður segir hlutina eða áherslur og solleiðis.
Hvernig húmor er uppáhaldið þitt?
South Park finnst mér allveg geggjað svo kannski bara venjulegur kúka og pissa uppí stelpur húmor.
Framtíðar takmark:
Unnur Birna eða Ragnhildur Steinunn
Rökkvi Vésteinsson | GSM : 8950024 | Email : smelltu hér | Uppistand.is