

| Björk Jakobsdóttir |
| Ferill: |
| Björk Jakobsdóttir er ein af helstu uppistöndurum og veislustjórum Íslands. Hún sló fyrst í gegn með leikriti sínu "Sellófon", einleik sem hún skrifaði og lék í og hefur síðan verið ein af aðal grínistum landsins. Björk er einnig menntuð leikkona, hefur áralanga reynslu af uppistandi á Íslandi og hefur meðal annars leikið í áramótaskaupinu. Sellófon hefur síðan verið sett upp í 12 löndum í Evrópu, stundum undir leikstjórn Bjarkar sjálfrar. |
| Byrjunin: |
| Ég byrjaði c.a 2 ára og átti nokkuð góða athyglissýkispretti þangað til ég fékk brjóst og áttaði mig á því að þetta snérist alls ekkert um að vera opin hlýr og skemmtilegur heldur var þetta keppni um að vera köld kúl og sæt... og gera alls ekkert sem gæti látið hópinn halda að þú hefðir vott af mannlegum tilfinningum. Við tók margra ára fegurðarsamkeppni um titilinn vinsælasta stelpan í hópnum... sem ég átti náttúrulega aldrei séns á að vinna .. enda með athyglissýki! á þessum tíma sat ég heima í gallastrets buxum sem ollu töluverðri andnauð.. og heimaprjónuðum leggings. Með sítt illa brunnið permanett hár og þá allra stærstu graftabólu sem nokkurntíman hefur vaxið á eyrnasneppli fyrr né síðar. En það tímabil tók sem betur fer enda og ég áttaði mig á því að það fólk sem var ekki að fíla mig voru bara leiðindapúkar. Nú og um leið og maður áttar sig á því að maður er bara næs og skemmtilegugur þá verður allt svo mikið auðveldara. Svo tók við leiklistarskólinn og sá þroski og vinna sem fylgdi í kjölfarið á því.Svo samdi ég fyrsta leikritið mitt Sellófon sem ég frumsýndi 2002 og sýndi í 3 ár. 'i framhaldi af því fór ég að fóta mig meira í uppistandi sem að mínu viti er erfiðasta form leiklistarinnar... að koma nakin fram er bara fullklæddur djókur miða við uppistandið. Það er ekkert alsberara en það. |
| Uppáhalds grínistar og uppistandarar: |
| Allir sem þora að stunda þetta fag. |
| Hápunkutur/hápunktar ferilsins til þessa: |
| Það hlýrut að vera þegar ég sýndi leikstjóra fyrsta leikritið sem ég samdi(sellófon) og hún sagði . ég fíla þetta lets dú it |
| Skemmtilegast við að vera grínisti: |
| Að hitta endalaust af nýju fólki og vera hent í að gera uppistönd af öllum toga.. Frábær leið til að kynnast fólki |
| Leiðinlegast/erfiðast við að vera grínisti: |
| Stressið við að hugsa til þess að maður gæti svikið fólk með því að vera ekki nógu góður |
| Hvað finnst þér gera virkilega góðan grínista? |
| Sá sem er óhræddur við að gera grín að sjálfum sér. |
| Hvernig húmor er uppáhaldið þitt? |
| Húmor sem sprettur úr eigin upplifun |
| Framtíðar takmark: |
| Léttast um 5-10 kíló (verið á framtíðalistanum síðan ég man eftir mér) |