

| Björgvin Franz Gíslason |
| Ferill: |
| Björvin Franz er einn af vinsælustu og bestu eftirhermum landsins og eftirsóttur grínisti. Björgvin útskrifaðist ungur úr leiklistarskólanum og var byrjaður með grín söngdúett með skólasystur sinni Kristjönu Skúladóttur áður en hann var einu sinni kominn úr skólanum. Skömmu seinna byrjaði hann að herma eftir hinum ýmsu tónlistarmönnum og í kjölfarið á því kom hann fram á áramótskaupinu, þar sem hann hermdi eftir mörgum af helstu poppurum Íslands. Þetta atriði skaut honum beinustu leið á stjörnuhimininn og í hóp vinsælustu grínista landsins þar sem hann hefur verið síðan. Enginn vafi á að hann hefur alveg lifað upp til orðspors foreldra sinna Eddu Björgvinsdóttur og Gísla Rúnars Jónssonar, sem bæði eru landsþekktir grínistar. |
| Byrjunin: |
| Ég byrjaði sem töframaður og uppistandari 17 ára gamall og var farinn að skemmta á árshátíðum, fjölskylduskemmtunum og þessháttar fyrir pening - Ég hef í raun aldrei sagt skilið við töfrabrögðin en nota þau mest þegar ég er kynnir á fjölskylduskemmtunum og þessháttar. Ég komst ungur inn í leiklistarskólann og ætlaði ekkert að gigga með honum, þangað til ég uppgötvaði hvað námslánin voru "há", þá var eiginlega ekkert um annað að ræða en að skemmta meðfram námi, sem var bara góð reynsla og styrkti enn frekar þann grunn sem ég myndi byggja á í framtíðinni - Það mátti faktíst séð ekki en skólastjórinn var mjög almennilegur og sá í gegnum fingur sér með það. |
| Uppáhalds grínistar og uppistandarar: |
| Ég er örugglega frekar óhefðbundinn í þessu - Þeir fyrstu sem koma upp í hugann eru Carlos Mencia (tékkið á honum á youtube, algerlega klikkaður), Lee Evans (ég tengi mikið við hann, hann er sjúklega ofvirkur og er orðinn löðursveittur eftir 2 mínútur inn í showinu) - Og svo auðvitað Jay Leno - Enn þann dag í dag er hann á fullu með eigið uppistand á klúbbum, Las Vegas og víðar, alltaf að þróa sig - Eða eins og hann er kallaður úti "The hardest working man in Hollywood" - Svo má auðvitað ekki gleyma þeim snillingum sem Ísland hefur alið - Þeir eru of margir til að telja upp hér. |
| Hápunkutur/hápunktar ferilsins til þessa: |
| Það er erfitt að segja til um, þau eru orðin mörg giggin og alltaf jafn ofboðslega gaman að gera þau - En ég verð nú samt að segja að hápunktur leiklistarferilsins míns er þegar ég fékk að segja setninguna "Ma, ma, he is killing me" í kvikmynd Clints Eastwood hér um árið - Fékk að hitta kallinn og allt, uss það var stuð!! |
| Skemmtilegast við að vera grínisti: |
| Þessi ótrúlegu verðlaun frá áhorfendum; Hláturinn!! - Sérstaklega þegar maður er að prófa nýja brandara eða nýtt efni og það virkar, það er ólýsanleg gleðitilfinning. > |
| Leiðinlegast/erfiðast við að vera grínisti: |
| Það hvað ég er oft kvíðinn fyrir skemmtanir |
| Hvað finnst þér gera virkilega góðan grínista? |
| Maður sem er alltaf að þróa sig og tekur áhættur - Og jú auðvitað fær fólk til að hlæja!! Ég sjálfur mætti taka miklu oftar áhættur í þessum bransa. |
| Hvernig húmor er uppáhaldið þitt? |
| Framtíðar takmark: |
| Verða heimsfrægur - Helst Hollywood leikari. |