Uppistand.is
Rokkvi
ÓskarP (Óskar Pétur Sævarsson)
 
Ferill:
ÓskarP byrjaði í uppistandi fyrir um tveim árum. Hefur hann komið fram og verið veislustjóri fyrir nokkur fyrirtæki og björgunarsveitir á Suðurnesjum þar sem hann sækir heimahaga sína og mikið af efninu sínu. ÓskarP reyndi fyrir sér í gríni á Bandaríkjunum veturinn 2010 og 2011 samfara því sem hann stundaði nám þar. Kom hann fram á 5 stöðum við miklar og góðar undirtektir.
Byrjunin:
Fyrsta uppistand ÓskarsPé var haldið á Top Of The Rock í Reykjanesbæ og eftir það byrjuðu fyrirtæki og vinahópar að bóka drenginn á uppákomur á sínum vegum.
Uppáhalds grínistar og uppistandarar:
Allir þeir grínistar sem eru stuttir og hnitmiðaðir í sínu gríni.
Hápunkutur/hápunktar ferilsins til þessa:
Að fylla skemmtistaðinn Paddy's og standa á sviði í einn og hálfan tíma í hálfgerðu maraþons uppistandi.
Skemmtilegast við að vera grínisti:
Allt fólkið og stundirnar sem þú færð að upplifa á sviði þar sem fólk grætur yfir bröndurunum þínum.
Leiðinlegast/erfiðast við að vera grínisti:
Það er ekkert leiðinlegt við að vera grínisti. Það eina sem er erfitt er að ryðjast í gegnum kvennahópinn sem bíður manns þegar maður kemur af sviði.
Hvað finnst þér gera virkilega góðan grínista?
Góður undirbúningur áður en grínistinn mætir á svæðið.
Hvernig húmor er uppáhaldið þitt?
Kaldhæðinn húmor sem byggir á djúpri hugsun eða ótrúlegri lífsreynslu.
Framtíðar takmark:
Að búa í vita með páfagauk og hlaupabretti.
Rökkvi Vésteinsson | GSM : 8950024 | Email : smelltu hér | Uppistand.is