Uppistand.is
Rokkvi
Þorsteinn Guðmundsson
 
Ferill:
Þorsteinn er menntaður leikari og hefur leikið í fjölda vinsælla þátta, auglýsinga og kvikmynda. Honum skaut fyrst upp á stjörnuheiminn í þáttunum Fóstbræðrum eins og öllum er kunnugt. Hann var einnig með hinn vinsæla spjallþátt Svalbarða á Skjá einum, lék í myndinni "Maður eins og ég" og með John Cleese í Kaupþings auglýsingunum frægu. Hann er líka vinsæll rithöfundur og hefur gefið út nokkrar bækur.
Byrjunin:
Ég byrjaði að skemmta í menntaskóla á árshátíðum og slíku. Það kom aðallega af því hvað mér leiddist í skólanum og langaði að drepa tímann. Mér datt líka í hug að þetta gæti hjálpað mér til þess að ná mér í kvenfólk. Ég byrjaði svo fyrir alvöru í uppistandi um 1999 ef ég man rétt og hef haft það sem atvinnu síðan, bæði aðalatvinnu og auka, eftir því hvað ég hef verið að gera annað. Það var 1990 sem ég útskrifaðist sem leikari og ég var frekar feginn enda var mér hótað oftar en einu sinni að reka mig úr skólanum af því að ég var svo lélegur. Helvítis pakk!!
Uppáhalds grínistar og uppistandarar:
Ég held að Eddie Izzard hafi kannski haft mestu áhrifin á mig. Annars finnst mér margir mjög góðir, Ardal O'Hanlon er t.d. einn af þeim, frekar óþekktur hér á landi. Svo hafa Sigurjón Kjartansson og Jón Gnarr haft mikil áhrif á mig líka. Þeir eru frábærir húmoristar.
Hápunkutur/hápunktar ferilsins til þessa:
Persónulega fannst mér mjög gaman að fá að skemmta með Eddie Izzard en hápunktarnir eru eiginlega frekar þessi tilfinning þegar allt gengur upp og flæðir áfram. Það gerist þegar áhorfendur eru í stuði fyrir mér og öfugt. Þetta eru nú einu sinni samskipti.
Skemmtilegast við að vera grínisti:
Það er skemmtilegast að vera í góðu flippi. Gott flipp er á við epli á dag.
Leiðinlegast/erfiðast við að vera grínisti:
Æ, þetta er náttúrulega varla hægt á Íslandi. Við erum svo fámenn. Við þyrftum að vera svona þrjár milljónir í viðbót, þá væri hægt að lifa af standuppi eingöngu og hafa það sæmilegt. Svo gæti maður selt teppi í aukavinnu. Pældu í því ef maður seldi 4 milljón teppa á 5.000 kr. stykkið. Það er hátt upp í fjölskyldubíl.
Hvað finnst þér gera virkilega góðan grínista?
Mér finnast allir fyndnir grínistar góðir. Fyndnin er besti mælikvarðinn.
Hvernig húmor er uppáhaldið þitt?
Fimmti húmor frá hægri.
Framtíðar takmark:
Framtíðartakmark er að láta fólk hlæja svo mikið að það fái sáðlát. Bæði karlar og konur. Ég myndi svo safna sæðinu saman og rækta alveg ótrúlegt hestakyn upp úr því. Ég nefnilega hata hvað hestar eru húmorslausir.
Rökkvi Vésteinsson | GSM : 8950024 | Email : smelltu hér | Uppistand.is