Uppistand.is
Rokkvi
Úlfar Linnet
 
Ferill:
Úlfar Linnet sigraði Fyndnasta mann Íslands árið 2001 og hefur æ síðan verið einn af vinsælustu uppistöndurunum á landinu. Úlfar hefur ótaloft komið fram sem uppistandari og átti mikið af grínefni á síðunni nulleinn.is sem var og hét. Hann lék líka í hinum bráðfyndnu Egils Gull auglýsingum ("Sérhannaður fyrir íslenskar aðstæður"). Eftir að hafa búið í Danmörku um nokkurt skeið er Úlfar kominn heim og aftur byrjaður í uppistandinu hérna á Íslandi.
Byrjunin:
Ég öfundaði svo Lalla þegar hann vann 2000 að ég ákvað að vera með á næsta ári. Já það var í sjálfu sér hrein öfund sem koma mér af stað. (Úlfar Linnet sigraði Fyndnasta mann Íslands 2001 eins og allir ættu að muna -uppistand.is).
Uppáhalds grínistar og uppistandarar:
Woody Allen
Hápunkutur/hápunktar ferilsins til þessa:
Þegar mjólkursamsalan snerist gegn mér. Tók atvikið svo alvarlega að ég drakk ekki mjólk lengi á eftir í mótmælaskyni.
Skemmtilegast við að vera grínisti:
Þegar maður er að skemmta sér og leiðinlegasti maðurinn á barnun vindur sér upp að manni og spyr "segðu eitthvað fyndið". Þá frussar maður bjór framan í hann og hlær lengi á eftir.
Leiðinlegast/erfiðast við að vera grínisti:
Þau örlog að þeim mun skemmtilegri sem þú ert á sviði þeim mun leiðinlegri ertu heima hjá þér.
Hvað finnst þér gera virkilega góðan grínista?
Orginalitet (dönskusletta)
Hvernig húmor er uppáhaldið þitt?
Ný málefni - frekar en nýjar hliðar á gömlum málum
Framtíðar takmark:
Ná að skemmta helv**** mjólkurfræðingunum.
Rökkvi Vésteinsson | GSM : 8950024 | Email : smelltu hér | Uppistand.is