Uppistand.is
Rokkvi
Sveinn Wagge
 
Ferill:
Sveinn Wagge vann fyrstu "Fyndnasti maður Íslands" keppnina 1998. En áður hafði hann komið fram nokkrum sinnum á Oliver(þeim eldri) ásamt fullt af fyndnu fólki s.s. Bryndísi Ásmunds, Rögnvaldi Gáfaða, Villa Goða og fl. Þetta var kjarninn sem tók þátt í fyrstu keppninni sem var haldin að frumkvæði Einars Bárðar.. nema hvað. Eftir að hafa unnið keppnina og fengið þennan bjánalega titil á bakið (þökk sé DV sálugu), gerði Sveinn lítið annað næstu 2 ár en stand-up, veislustjórn og síðar að auki útvarp og auglýsingalestur. Hefur komið fram í sjónvarpi c.a.10 sinnum, skemmt í flest öllum framhaldsskólum landsins, mörgum oftar en einu sinni og tvisvar. Var í Hirðfíflum hennar hátignar með Jóni Gnarr sem síðar varð "Einu sinni var ég Nörd". Hefur skemmt útlendingum á hótelum landsins á ensku.
Byrjunin:
Ég var fljótlega farinn að fíflast sem unglingur og einn daginn datt það inn að enskan og allur hennar margbreytileiki átti sérlega vel við mig, átti auðvelt með að leika mér með hreima nokkuð sannfærandi. Eiginlegt stand-up hófst í USA, Georgiu þegar ég vippaði mér upp á open mike og reif kjaft á skosku. Allt varð geðveikt og pro-gaurinn sem átti að slútta kvöldinu varð brjál :D
Uppáhalds grínistar og uppistandarar:
Eddie Izzard, Billy Connoly, Ricky Gervais, Lee Evans og fleiri.. Bretarnir eru bestir.. finnst mér :)
Hápunkutur/hápunktar ferilsins til þessa:
Keppnin "98.. á niðurleið síðan :D Nei það eru nokkur mjög eftirminnileg gigg: Kosningasjónvarp Stöðvar2, 45 mín teknar upp og allt sýnt, 900 manna dinner á sjómannadeginum á Ak. og allt truflað, HSÍ-gigg á Broadway, 2 tíma stand up á Kaffi Menning fyrir norðan, 2 frábær gigg í Sandgerði og Njarðvík núna í vor 2006 þar sem Árni "frændi" Johnsen hitaði upp og svo var mjög gaman á Nasa snemma í ár með 7 öðrum grínurum og allir brilleruðu í fullu húsi. Skulum vona að Hápunkturinn á ferlinum sé eftir :)
Skemmtilegast við að vera grínisti:
Kikkið, kikkið og.. let me think !? kikkið !!
Leiðinlegast/erfiðast við að vera grínisti:
Stressið, pressan, stöðug sjálfsgagnrýni og niðurrif, eiga vera fyndinn utan sviðsins.. þoli það ekki !
Hvað finnst þér gera virkilega góðan grínista?
Gáfur nr.1 góðir grínarar eru upp til hópa mjög vel gefnir. Menn þurfa að hafa sellur til að geta ímyndað sér aðstæður, snúa út úr hlutum, sjá nýjar hliðar.. annars er mjög sjaldgæft tel ég að glæný "fynd" séu uppfundin sem engum öðrum hefur dottið í hug einhverstaðar annarstaðar. Þetta má heyra í viðtölum við marga grínista. Og jú, góður grínari þarf að vera leikari.. helst góður leikari. (ekki endilega lærður leikari þar með ;)
Hvernig húmor er uppáhaldið þitt?
Vá!? það sem er fyndið er í uppáhaldi :) sjálfur er ég kaldhæðinn og fíla dökkan og neyðarlegan húmor en ég fíla líka allan húmor sem er vel gerður og fluttur. Lee Evans er ofvirk strengjabrúða en hræðilega fyndinn. Vertu reiður, hæðinn, klaufskur.. what ever bara vertu líka fyndinn og þá hlæ ég manna hæst :)
Framtíðar takmark:
Að sigrast á stórvirkjunnarglapræðisáformum stjórnvalda með gamanmálum.. og já eitt en ! Koma fólki í skilning um að það sé bara ekki fyndið, eitt og sér, að orð rými !? Hagyrðingar eru með besta jobbið í bransanum.. láta orð rýma og allir tryllast úr hlátri !? COME ON !!
Rökkvi Vésteinsson | GSM : 8950024 | Email : smelltu hér | Uppistand.is