Uppistand.is
Rokkvi
Beggi Blindi
 
Ferill:
Beggi Blindi vann keppnina Fyndnasti maður MH árið 2004. Hann er, eins og nafnið gefur til kynna, blindur. Beggi hefur verið með uppistönd úti um allt land í menntaskólum, grunnskólum og skemmtisötðum og alls komið fram um 100 sinnum.
Byrjunin:
Prófaði að vera með uppistand á bekkjarkvöli í Hamarsskóla í 5. bekk í eyjum, en var bara að lesa brandara af blaði þá. Fyrsta alveru giggið var í Menntaskólanum á Akureyri febrúar 2003 (fékk 5000 kall fyrir og borgaði flugið sjálfur).
Uppáhalds grínistar og uppistandarar:
Jón Gnarr er maðurinn
Hápunkutur/hápunktar ferilsins til þessa:
Uppistand á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum 2006, fyrir 8 þúsund manns.
Skemmtilegast við að vera grínisti:
Það að maður komist upp með að gera grín að fólki og segja fullt af hlutum sem væru óviðeigandi nema af því þetta er grín. Fyrir utan að maður kynnist mikið áhugaverðu fólki og lærir ótrúlega mikið í íslenskri landafræði. Hver vissi svosem að Stöðvarfjörður væri rétt hjá Fásrkúðsfirði?
Leiðinlegast/erfiðast við að vera grínisti:
Leiðinlegt þegar maður fer fljúgandi yfir hálft landið og það mæta fimm manns á uppistandið manns.
Hvað finnst þér gera virkilega góðan grínista?
Sá sem getur talað stanslaust í 20-30 mínútur og getur gert grín að fólkinu í salnum hverju sinni. Uppistandari þarf að geta lagað sig að aðstæðum og brugðist við því sem er að gerast í kringum sig hverju sinni, ekki bara ríghalda í eitthvert handrit sem hann er með og pissa á sig ef hann þarf að bregða út af því.
Hvernig húmor er uppáhaldið þitt?
Svartur.
Framtíðar takmark:
Leika í stelpunum.
Rökkvi Vésteinsson | GSM : 8950024 | Email : smelltu hér | Uppistand.is