Uppistand.is
Rokkvi
Góðgerðarmál Uppistand.is
 
Uppistand.is er nú rekin af mér, Rökkva Vésteinssyni. Uppistand.is er ekki starfrækt í gróðaskyni. Hún kemur uppistöndurum á framfæri og hún er einnig með góðgerðarstarfsemi. Uppistand.is heldur stundum góðgerðaruppistönd. Einnig er hægt er að panta mig til að skemmta á hvaða atburðum sem er og í staðinn fyrir að borga mér, borgið þið til góðgerðarstarfsemi að ykkar eigin vali (svo lengi sem hún tengist ekki trú)
 
Þið hafið samband, látið mig vita hvaða málefni þið viljið styrkja og við semjum um upphæðina. Síðan borgið þið bara inn á viðeigandi styrktarreikning. Ef ég þarf að keyra mjög langt eða fljúga þarf reyndar að borga ferðakostnað fyrir mig. Markmiðið er að safna amk einni milljón samanlagt með þessari vinnu.
 
Uppistandarar sem vilja gefa kost á að láta panta sig á sama hátt, eða á einhvern hátt leggja vinnu sína fram til að styrkja góð málefni, vinsamlegast hafið samband. Fyrirtæki sem vilja hjálpa til, endilega hafið samband líka.
 
Hafið samband gegnum email eða í síma 895-0024
 

Hafið líka í huga að þó ég sé góðgerðaruppistandari, getur efnið mitt oft verið gróft, kaldhæðið, illkvittið, klámfengið, innihaldið háð eða gagnrýni og eitthvað sem hugsanlega getur verið móðgandi fyrir einhverja. Horfið á videoið að ofan til að fá hugmynd um hvernig efni ég er með.

Rökkvi Vésteinsson | GSM : 8950024 | Email : smelltu hér | Uppistand.is